HEIL2HU01 - Heilsulæsi 5

Einingafjöldi: 1
Þrep: 2
Í áfanganum er lögð áhersla á heildræna heilsueflingu. Farið er yfir gildi hreyfingar og mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð. Nemendur fá fræðslu um mikilvægi þess að tengja saman andlega og líkamlega vellíðan. Þá er leitast við að auka meðvitund um hvað sé góð næring og skilja mikilvægi hennar til að viðhalda heilbrigði eða hvað gæti verið skaðlegt. Farið er yfir fjölbreytta möguleika til líkams- og heilsuræktar innan dyra sem utan. Verkefnavinna byggist á uppbyggingu þjálfunaráætlunar og markmiðssetningu. Lögð er rík áhersla á einstaklingshæfða þjálfun utan skóla. Nemendur setja sér raunhæf markmið í líkams- og heilsurækt og vinna sjálfstætt utan skólans að eigin markmiðum. Í öllum áföngum er minnt á mikilvægi svefns og slökunar. Allt námið er í fjarnámi.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu þjálfunaráætlunar og markmiðssetningu
  • forvarnargildi almennrar heilsuræktar
  • mikilvægi allra þátta sem snúa að heildrænni heilsu
  • mikilvægi svefns, hvíldar og slökunar
  • mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja einstaklingshæfð markmið
  • tileinka sér virkan lífsstíl
  • æfa slökun, liðleika og teygjur
  • æfa hreyfingar sem stuðla að bættri líkamsbeitingu- og stöðu
  • stunda fjölbreytta líkams- og heilsurækt
  • huga að öllum þáttum sem snúa að heildrænni heilsu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér markmiðsetningu til að takast á við persónulegar áskoranir og leysa af hendi krefjandi verkefni daglegs lífs
  • nýta tækifæri til þjálfunar og nota til þess fjölbreyttar aðferðir
  • akast á við áskoranir daglegs lífs varðandi heilbrigðan lífsstíl
  • stunda sjálfstæða líkams- og heilsurækt til framtíðar
  • bera ábyrgði á eigin heilsu og vellíðan
Nánari upplýsingar á námskrá.is