LÍFF2GR05 - Almenn líffræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í þessum byrjunaráfanga fyrir náttúruvísindadeild er gerð grein fyrir hlutverki líffræðinnar og tengslum hennar við aðrar fræðigreinar. Fjallað er um helstu viðfangsefni líffræðinnar, farið yfir grunnhugtök og líffræðilega ferla og fjölbreytileiki lífvera kynntur. Skoðað verður samspil milli lífvera og umhverfis. Helstu efnisþættir eru: helstu sameiginleg einkenni lífvera, efni og helstu efnaferlar í lífverum, bygging og starfsemi fruma, fjölbreytileiki og flokkun lífvera, grundvallaratriði vistfræðinnar, æxlun lífvera, grundvallaratriði erfða og helstu kenningar um þróun. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á umhverfi sínu og því sem menn eiga sameiginlegt með öðrum lífverum. Því er reynt að tengja líffræðina daglegu lífi og áhugasviði ungs fólks. Einnig eru verkefni tengd umhverfi nemenda með það fyrir augum að auka áhuga þeirra og kynna þeim mikilvægi þekkingar á líffræði í daglegu lífi. Nemendur verði undirbúnir undir frekara nám í líffræði og skyldum greinum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grundvallaratriðum vísindalegrar aðferðar
  • sérkennum líffræðinnar sem fræðigreinar og tengslum hennar við aðrar greinar
  • grundvallarhugtökum líffræðinnar
  • grundvallaratriðum vistfræðinnar
  • helstu flokkum efna í lífverum
  • byggingu og starfsemi fruma
  • helstu kenningum um erfðir og þróun
  • helstu ríkjum og fylkingum lífvera

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa líffræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
  • gera rannsóknarskýrslu
  • lesa í tengsl milli lífvera í umhverfinu
  • skoða lífverur í náttúrunni og í smásjá
  • átta sig á einföldum erfðamynstrum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • auka skilning á fyrirbærum náttúru- og raunvísinda
  • leggja gróft mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu á gagnrýninn hátt
  • tengja undirstöðuþekkingu í líffræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
  • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. líffræðilegra þátta
  • afla sér frekari þekkingar á líffræðilegum viðfangsefnum
Nánari upplýsingar á námskrá.is