FRAN2YF05 - Yndislestur framhald

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FRAN2YN03/05
Áfanginn er svipaður að uppbyggingu og undanfarinn. Meginmarkmiðið er að nemendur lesi frönsku sér til ánægju og gangs og þjálfist í að nota tungumálið til að tala um efni sem þau hafa lesið og kynnt sér. Nemendur lesa ýmiss konar texta, svo sem skáldsögur, smásögur, myndasögur, tímaritsgreinar og fræðsluefni á netinu. Nemendur velja að stórum hluta það efni sem þau vinna með. Nemendur vinna sjálfstætt með textann hverju sinni og kynna niðurstöður í viðtali við kennara. Einnig gera nemendur skriflegar greinargerðir sem er svo safnað saman og skilað sem safnmöppu í lok áfangans. Áfanginn er símatsáfangi sem byggir á munnlegum og skriflegum verkefnum ásamt raunmætingu. Hægt er að velja hann sem 3 eða 5 einingar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ólíkum textagerðum, s.s. skáldsögum, smásögum, tímaritsgreinum og efni á netinu
  • þeim orðaforða sem er nauðsynlegur til að mæta markmiðum áfangans
  • mannlífi og menningu frönskumælandi landa

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa margs konar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
  • greina nokkuð ítarlega og af talsverðu öryggi frá efni texta sem nemandi hefur unnið með, bæði munnlega og skriflega
  • taka þátt í samræðum um efnið, bregðast við óvæntum spurningum og setja fram eigin skoðanir
  • nota hjálpargögn, svo sem orðabækur, við úrvinnslu texta

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um margskonar efni sem nemandi hefur kynnt sér sjálfstætt og tjá eigin skoðanir
  • vinna sjálfstætt og skipulega
  • velja sér lesefni á hæfilegu þyngdarstigi og hafa trú á eigin kunnáttu
Nánari upplýsingar á námskrá.is