ENSK2UK05 - Fræðilegur orðaforði og Bretland - 2. áfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ENSK2AM05
Áhersla er lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast menningarheimi Bretlands, fjallað verður um breskt samfélag, venjur og siði. Í tengslum við það verður unnið með fjölbreyttan breskan texta, breskt bókmenntaverk, kvikmyndir, heimildamyndir, hlaðvörp, o.fl. sem túlkað verður út frá menningarlegu samhengi. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi B2 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
  • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
  • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
  • mismunandi ritstíl, tilgangi og tóni í ólíkum textum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
  • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
  • greina og skilja málfarsmun á mismunandi málsvæðum
  • tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
  • tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
  • taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
  • tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
  • skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
  • nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
  • geta unnið úr heimildum og skrifað eigin texta byggðan á heimildavinnu
Nánari upplýsingar á námskrá.is