ÍSLE2MN05 - Málsaga, goðafræði og bókmenntir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÍSLE2MB05
Í þessum áfanga er fjallað um bókmenntir, málsögu og norræna goðafræði. Í málsögunni er meðal annars fjallað um þróun ritkerfa, helstu breytingar sem orðið hafa á íslenskri tungu og hver staða hennar er í dag. Nemendur eru þjálfaðir í notkun bókmenntahugtaka. Þeir vinna með eina nútímaskáldsögu auk þess sem þeir lesa eina valbók. Fjallað er ítarlega um norræna goðafræði með lestri Snorra-Eddu auk eddukvæða.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu þáttum íslenskrar málsögu
  • mismunandi tegundum bókmennta og norrænni goðafræði

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
  • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
  • beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
  • taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
  • túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
  • tengja íslenskuna við fortíð og framtíð
Nánari upplýsingar á námskrá.is