Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: DANS2ML03 og DANS2LR04 eða DANS2RM07
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur vinni með flóknari texta en áður. Unnið er með orðaforða sem tengist m.a. daglegu lífi, umhverfismálum, ferðamennsku, menntakerfi, tækni og vísindum. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast dönskum bókmenntum og hvernig þær endurspegla danskt samfélag. Í áfanganum eru lesnir bæði rauntextar og bókmenntatextar. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum í formi kynninga og ritunarverkefna.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
- ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska/norræna menningu
- orðaforða til undirbúnings náms á háskólastigi
- helstu hefðum við uppsetningu og skipulag ritaðs máls
- mismunandi bókmenntatextum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður og algengustu orðasambönd sem einkenna það
- lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnis
- tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
- rita margs konar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
- beita meginreglum danskrar málfræði og setningafræði
- túlka mismunandi bókmenntatexta
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
- nýta ritaða texta á mismunandi hátt
- lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt, bregðast við og tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra
- geta lesið á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta
- geta tjáð sig hiklaust og tekið þátt í samræðum við ólíka viðmælendur sem hafa dönsku að móðurmáli
- geta skipst á skoðunum og sett fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og komið þeim kunnáttusamlega til annarra
- geta talað lipurlega og með nægilega góðum framburði, hrynjandi og áherslum til að vel skiljist
- tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um efni sem hann hefur kynnt sér
- skrifa læsilega texta um sérvalið efni þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
- skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni.
Nánari upplýsingar á námskrá.is