STÆR2LH05 - Hornaföll og vigrar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR2GN05
Ræð föll, aðfellur, rótarjöfnur, brotajöfnur, algildisjöfnur, jöfnur á 2. stigs formi, ójöfnur og formerkjatöflur. Samsett föll, andhverf föll, ummyndanir (hliðranir, speglanir, stríkkanir). Runur, jafnmunarunur, kvótarunur, vaxtareikningur, jafnmunaraðir og kvótaraðir.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ræðum föllum og aðfellum
  • sönnunum á helstu reglum í námsefninu
  • veldareglum og brotnum veldisvísum
  • lausn rótarjafna, brotajafna og algildisjafna
  • lausn á ýmsum tegundum ójafna
  • ummyndunum, s.s. hliðrunum, speglunum og stríkkunum
  • runum og röðum, jafnmunarunum og kvótarunum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • leysa ýmsar tegundir jafna og ójafna
  • meðhöndla ýmis föll, andhverfur og samsetningar falla
  • nota summumerki og meðhöndla runur og raðir

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausn verkefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
  • taka ákvarðanir í sértækum verkefnum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is