LEIK2SR05 - Leiklist: saga, ritun, túlkun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Áfanginn er verklegur og fræðilegur. Lesin verða þrjú leikrit: eitt íslenskt, eitt enskt og eitt franskt (erlendu leikritin eru lesin í íslenskri þýðingu). Áherslan er á æfingaferli leikarans og þann undirbúning og þá tæknilegu vinnu sem hann þarf að inna af hendi við uppsetningu leikrits hverju sinni. Valdar senur úr leikritunum eru skoðaðar sérstaklega, þær æfðar og leiknar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvernig leikhúsfólk hagar undirbúningi við uppfærslu leikrits
  • hvernig leikarar þróa og vinna karaktera á æfingatíma leikrits
  • mikilvægi rannsóknarvinnu þegar leikrit eru sett upp
  • samfélagslegum og sögulegum bakgrunni þriggja leikrita úr ólíkum áttum og höfunda þeirra
  • hvernig hægt er að aðlaga leikrit sem eru rituð fyrr á tímum að veruleika nútímans

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna nauðsynlega rannsóknarvinnu fyrir uppsetningu leikrits
  • aðlaga eldri leikrit að nútímanum
  • búa til og þróa karakter í leikriti
  • æfa og sýna atriði úr leikritum eftir handriti

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • njóta leiklistar og leikrita fyrri tíma, sem lesandi og áhorfandi
  • tjá sig í leiklist
  • greina og túlka hugmyndir og tíðaranda skilgreinds tímabils af þekkingu og skilningi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is