NÆRI1NÆ05 - Næringarfræði - grunnáfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Grunnáfangi í efnafræði
Í áfanganum er gerð grein fyrir viðfangsefnum næringarfræðinnar, farið í helstu hugtök og undirstöðuatriði fræðigreinarinnar. Helstu efnisþættir eru: matur, næring og heilbrigði, orka og orkuefni fæðu, kolvetni, fita og prótein, melting, vatn sem næringarefni, steinefni, vítamín, næringargildi matvara og máltíða, næringarþarfir sérstakra hópa, næringartengdir sjúkdómar og áhrif matreiðsluaðferða á næringargildi. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á grundvallaratriðum næringarfræðinnar og samspili næringar, heilsu og líkamsþjálfunar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • samspili matar, næringar og heilbrigðis
  • orku og orkuefnum fæðunnar og orkubúskap líkamans
  • meltingu
  • vatni sem hluta fæðu
  • steinefnum
  • vítamínum
  • næringargildi matvara og máltíða
  • næringarþörfum sérstakra hópa
  • næringartengdum sjúkdómum
  • áhrifum matreiðsluaðferða á næringargildi

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa næringarfræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
  • beita hugtökum næringarfræðinnar
  • þekkja þau efni sem fæða hans er samsett úr
  • reikna orkuinnihald og næringarefnainnihald fæðu
  • setja saman hollan matseðil fyrir mismunandi hópa

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • auka skilning sinn á næringarfræðilegum viðfangsefnum
  • geta tekið rökstudda afstöðu til næringarfræðilegra álitamála
  • tengja undirstöðuþekkingu í næringarfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
  • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. næringarþarfa og heilbrigðis
  • afla sér frekari þekkingar á sviði næringarfræðinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is