ENSK1ÍA05 - Enska fyrir nemendur á íslenskubraut

Námsgrein : Enska

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1 

Áfanginn er ætlaður nemendum með íslensku sem annað tungumál. Megin viðfangsefni áfangans er að meta og efla kunnáttu nemenda í ensku. Lögð er áhersla a að nemendur læri fjölbreyttan orðaforða og tileinki sér undirstöðuatriði enskrar málfræði. Nemendur eiga að ná að beita orðaforða sínum og málfræðiþekkingu á virkan hátt, bæði í rituðu og mæltu máli. Nemendur vinna með ýmis konar texta, hlustun og myndefni. Aðeins er töluð enska í kennslustundum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilnings á:

  • almennun enskum orðaforða
  • grunnatriðum enskrar málfræði 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja einfalda og miðlungs flókna talaða ensku
  • skrifa og lesa einfalda og flóknari texta á ensku 
  • tjá sig munnlega á ensku um texta og málefni sem fjallað hefur verið um 

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur afla sér til að:

  • nýta sér ensku í daglegu lífi 
  • skilja munnlegar og ritaðar leiðbeiningar á ensku 
  • nýta sér ýmis hjálpargögn í enskunámi, s.s. þýðingarforrit, orðabækur, o.fl.