UPPT1ÍA03 - Grunnáfangi í upplýsingatækni

Námsgrein : Upplýsingatækni

Lýsing

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1

Áfanginn er ætlaður nemendum með íslensku sem annað mál. Nemendur kynnast notkun á Innu, skjalavistun, tölvupósti og Teams. Auk þess gera þeir verkefni í ritvinnslu-, töflureikni- og glærugerðarforritum í Office og þjálfa sig í notkun lyklaborðs. 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim tölvukerfum sem skólinn notar í samskiptum við nemendur,
  • öðrum hugbúnaði sem nýtist í námi,
  • vistun gagna sem hann vinnur með í tengslum við námið,
  • notkun tölvupósts,
  • almennri notkun einkatölva.

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna í þeim kerfum og hugbúnaði sem kennt er á í áfanganum,
  • fylgja fyrirmælum við vinnslu verkefna í viðkomandi hugbúnaði,
  • setja upp og ljúka verkefnum samkvæmt fyrirmælum,
  • rita á íslensku,
  • vista skjöl sem hann vinnur með á viðeigandi stað,
  • skrifa á íslenskt lyklaborð.

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fylgjast með eigin námi og eiga í samskiptum við viðeigandi aðila innan skólans,
  • auðvelda sér upplýsingaöflun í námi,
  • nýta sér viðeigandi hugbúnað í námi,
  • vista og varðveita eigin gögn.