STAR1SA02 - Fjölbreytni starfa og menntun

Námsgrein : Starfsnám

Lýsing

Kjarnaáfangi á starfsbraut
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1

Áfanginn miðar að því að efla vitund nemenda um fjölbreytt tækifæri í atvinnulífi og menntun. Nemendur kynnast ólíkum störfum, starfsheitum og kröfum á vinnumarkaði. Lögð er áhersla á að nemendur þrói raunhæfa sýn á eigin styrkleika, áhuga og möguleika til náms og atvinnuþátttöku. Nemendur þjálfast í upplýsingaleit og að taka upplýstar ákvarðanir um framtíðina.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • fjölbreyttum störfum og starfsumhverfi þeirra
  • þeim kröfum um hæfni, þekkingu og menntun sem ólík störf gera
  • leiðum til frekara náms, starfsþróunar og þátttöku á vinnumarkaði
  • mikilvægi ólíkra starfa og samspili þeirra á vinnustöðum 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla og nýta upplýsingar um störf, réttindi og námsmöguleika
  • greina eigin styrkleika, áhugasvið og markmið í tengslum við starfsval
  • vinna sjálfstætt og skipulega að verkefnum
  • meta eigin tækifæri til náms, atvinnu og þátttöku í samfélaginu

Hæfnisviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka upplýstar og ábyrgðarfullar ákvarðanir um nám og framtíðarstarf
  • sýna sjálfstæði, frumkvæði og ábyrgð í vinnubrögðum
  • meta eigin hæfni og áhuga í samhengi við kröfur starfa og framtíðaráform
  • setja sér raunhæf markmið um nám, atvinnu og starfsþróun 

Námsmat:
Símat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.