STÆR3DÓ05 - Heildun, heildunaraðferðir og hagnýting heildareiknings
Undanfari : STÆR3FD05
Námsgrein
: Stærðfræði
Lýsing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Heildareikningur og hagnýting heildareiknings. Stofnföll og óákveðin heildi. Heildunaraðferðir, meðal annars innsetning, hlutheildun, hornafallainnsetningar og heildun með stofnbrotaliðun. Ákveðin heildi og eiginleikar þeirra. Undirstöðusetning stærðfræðigreiningar og tengsl diffrunar og heildunar. Meðalgildi falls og diffrun heildis. Notkun heildunar til að finna flatarmál svæða og rúmmál snúða, meðal annars með skífuaðferð og hólkaaðferð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökunum stofnfall, óákveðið heildi og ákveðið heildi
- tengslum diffrunar og heildunar
- undirstöðusetningu stærðfræðigreiningar
- helstu reiknireglum og eiginleikum ákveðinna og óákveðinna heilda
- helstu heildunaraðferðum, þar á meðal innsetningu, hlutheildun, hornafallainnsetningum og stofnbrotaliðun
- rúmfræðilegri túlkun ákveðins heildis
- meðalgildi falls á bili
- diffrun heildis
- notkun heildunar til að ákvarða flatarmál svæða
- skífuaðferð og hólkaaðferð við útreikning á rúmmáli snúða
- hagnýtingu heildareiknings við lausn stærðfræðilegra og hagnýtra viðfangsefna
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- finna stofnföll og reikna óákveðin heildi
- reikna ákveðin heildi og beita eiginleikum þeirra
- velja og beita viðeigandi heildunaraðferð
- beita innsetningu, hlutheildun, hornafallainnsetningum og stofnbrotaliðun við heildun
- nota undirstöðusetningu stærðfræðigreiningar
- finna meðalgildi falls á gefnu bili
- diffra heildi þar sem efri eða neðri mörk eru breytileg
- setja upp og reikna heildi til að finna flatarmál svæða
- setja upp og reikna heildi til að finna rúmmál snúða með skífuaðferð og hólkaaðferð
- velja viðeigandi aðferð við útreikning á rúmmáli snúðs út frá gefnu svæði og snúningsás
- lesa og túlka myndrænar upplýsingar sem tengjast ákveðnum heildum og hagnýtingu þeirra
- setja útreikninga og niðurstöður fram á skýran og skipulegan hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina heildunarverkefni og velja viðeigandi aðferð við lausn þeirra
- útskýra og nýta tengsl diffrunar og heildunar
- túlka ákveðið heildi bæði algebrulega og rúmfræðilega
- tengja saman myndræna, tölulega og algebrulega framsetningu heilda
- setja upp heildi út frá gefnum upplýsingum og túlka niðurstöður í samhengi við viðfangsefnið
- nota heildareikning til að ákvarða flatarmál svæða
- velja og beita skífuaðferð eða hólkaaðferð til að ákvarða rúmmál snúða
- lesa og túlka upplýsingar úr gröfum og nýta þær við uppsetningu og útreikning heilda
- beita heildareikningi við lausn hagnýtra viðfangsefna
- fylgja og setja fram stærðfræðileg rök og röksemdir á skipulegan og skilmerkilegan hátt
- skrá lausnir sínar með viðeigandi stærðfræðitáknum og útskýra aðferðir sínar og niðurstöður
- beita skipulegum aðferðum við lausn nýrra viðfangsefna og meta hvort niðurstöður séu raunhæfar og í samræmi við gefnar forsendur