STÆR2FH05 - Grunnáfangi á félagsvísindabraut
Lýsing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Viðfangsefni áfangans eru hnitakerfi, veldi og rætur, algebra, ójöfnur, fyrsta og annars stigs jöfnur, fleygbogar og margliður, talningafræði, prósentur, vextir, einfaldar vaxta-, logra- og rótarjöfnur og vísitölureikningar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
-
-
undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum
-
ójöfnum af 1. stigi og samsettum ójöfnum
-
þáttun, veldum og rótum, meðferð algebrubrota og margliða
-
hnitakerfinu, gildatöflum og einkennapunktum ferla fleygboga
-
rótarjöfnum, prósentum, vöxtum og einföldum logra- og vísitölureikningum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
-
-
nota undirstöðureglur talna- og bókstafareiknings til einföldunar stærðtákna og útreiknings og til að leysa 1. og 2. stigs jöfnur
- vinna með hnitakerfið, ferla beinna lína og fleygboga
- beita veldareglum við ýmiss konar umritanir
- leysa einfaldar og samsettar ójöfnur
-
reikna prósentu-, vaxta- og vísitölubreytingar og leysa vaxta- og rótarjöfnur
-
reikna árafjölda á vöxtum með notkun einfaldra lograjafna
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur