STÆR1SD04 - Prósentureikningur

Námsgrein : Stærðfræði

Lýsing

Kjarnaáfangi á starfsbraut
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1

Í áfanganum er lögð áhersla á prósentureikning og hvernig prósentur birtast í daglegu lífi og samfélagi. Nemendur vinna meðal annars með afslætti, verðbreytingar, laun, skatta og önnur raunhæf verkefni tengd fjármálum og neyslu. Áhersla er lögð á að efla skilning nemenda á prósentum og þjálfa þá í að beita prósentureikningi við raunverulegar aðstæður. Jafnframt er unnið að því að styrkja færni nemenda til að nýta stærðfræði við upplýstar ákvarðanir í daglegu lífi.

 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • undirstöðuatriðum prósentureiknings
  • hugtökum prósentureiknings
  • áhrif prósentubreytinga á verðlag
  • hvernig vasareiknir nýtist í útreikningi

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna hluta, heild og prósentu
  • beita rökhugsun við lausn verkefna
  • reikna verð eftir prósentubreytingar

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sýna skilning á hugtökum verðbreytinga
  • meta áhrif prósentubreytinga
  • nýta prósentureikning við innkaup

 

Námsmat
Símat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.