STÆR1SC04 - Almenn brot og tugabrot

Námsgrein : Stærðfræði

Lýsing

Kjarnaáfangi á starfsbraut
Einingar: 4
1. þrep

Í áfanganum er lögð áhersla á almenn brot og tugabrot og hagnýta notkun þeirra í daglegu lífi. Nemendur vinna með lengingu og styttingu brota og þjálfast í samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu brota og tugabrota. Verkefni eru tengd raunhæfum aðstæðum, svo sem mælingum, matreiðslu og meðferð peninga. Áhersla er lögð á að efla skilning nemenda á stærðfræðilegum hugtökum, styrkja sjálfstraust þeirra í stærðfræði og þjálfa þá í að beita stærðfræði við fjölbreyttar aðstæður í daglegu lífi.

 

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • almennum brotum
  • tugabrotum


Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lengja og stytta almenn brot
  • leggja saman, draga frá, margfalda og deila almenn brot
  • beita almennum brotum og tugabrotum við útreikninga


Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta reiknað eftir fyrirmælum
  • láta skýringar fylgja með útreikningum
  • vanda alla framsetningu og nota stærðfræðitákn á viðeigandi hátt


Námsmat
Símat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.