STÆR1SA04 - Almennar reiknireglur

Námsgrein : Stærðfræði

Lýsing

Kjarnaáfangi á starfsbraut
4. einingar
1. þrep

Í áfanganum er lögð áhersla á grunnreikning og notkun reikniaðgerðanna fjögurra í daglegu lífi. Nemendur vinna með samlagningu, frádrátt, margföldun og deilingu heilla talna og leysa raunhæf verkefni sem tengjast daglegum aðstæðum. Áhersla er lögð á að efla sjálfstraust nemenda í stærðfræði, styrkja rökhugsun og stuðla að sjálfstæðum vinnubrögðum. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur öðlist skilning á hagnýtu gildi stærðfræðinnar og geti nýtt hana við fjölbreyttar aðstæður í daglegu lífi og samfélagi.

 

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • reikningsaðgerðunum fjórum, samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu 
  • heilum tölum, bæði jákvæðum og neikvæðum

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota reikningsaðgerðirnar fjórar með heilum tölum
  • nota algeng stærðfræðitákn á réttan hátt
  • setja upp og leysa einföld einföld dæmi sem tengjast daglegu lífi


Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita grunnreikningi við úrlausn verkefna sem tengjast daglegu lífi 
  • sýna útreikninga og skrá lausnir sínar á skýran og skipulagðan hátt 
  • nota stærðfræðitákn á viðeigandi og réttan hátt 
  • vinna sjálfstætt og sýna vandvirkni í vinnubrögðum 


Námsmat
Símat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.