SAGA3ÍS05 - Ísland - best í heimi

Undanfari : SAGA2MN05
Námsgrein : Saga

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3

Ísland og umheimurinn. 

Teknir eru fyrir helstu atburðir sem tengjast samskiptum Íslands við önnur ríki frá seinni heimsstyrjöld til dagsins í dag t.d. hernámsárin, herstöðvarmálið, varnarsamningurinn, þorskastríðin og hrunið. Einnig er fjallað um aðild Íslands að alþjóðastofnunum, tengslin við þær og þátttaka í alþjóðlegu samstarfi. Áfanginn byggir að miklu leyti á sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda, heimildaleit, verkefnavinnu, úrvinnslu og framsetningu efnis.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu atburðum í sögu íslands frá lýðveldisstofnun til dagsins í dag
  • helstu hugtökum í alþjóðasamskiptum
  • hlutverki helstu alþjóðastofnana sem Ísland á aðild að
  • mismunandi tegundum heimilda, aðferðum við heimildaleit og mikilvægi heimildarýni
  • ólíkum miðlunarformum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • túlka og nýta sagnfræðilega texta á íslensku og ensku
  • leita sér heimilda t.d. í gagnasöfnum, í fjölmiðlum og á bókasöfnum
  • meta gildi og áreiðanleika heimilda og nýta sér fjölbreyttar tegundir þeirra
  • nota ólík miðlunarform til að miðla sögulegu efni, t.d. skrifa blaðagrein, ritgerð, búa til veggspjald, útvarpsþátt o.s.frv.
  • beita gagnrýninni hugsun

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leita sér upplýsinga um tiltekið sögulegt efni 
  • koma söguþekkingu sinni og söguskilningi á framfæri með skýrum og fjölbreyttum hætti
  • leggja mat á mikilvægi þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi
  • taka þátt í rökræðum um söguleg málefni
  • skilja betur umfjöllun um alþjóðamál í fjölmiðlum og geta tekið gagnrýna afstöðu til hennar