SAGA3ÁS05 - Frá kjarnorkuógn til TikTok
Undanfari : SAGA2MN05
Námsgrein
: Saga
Lýsing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í áfanganum verður fjallað um helstu atburði og þjóðfélagsbreytingar eftir Síðari heimsstyrjöld. Áhersla verður lögð á eftirfarandi efni: Kalda stríðið, hipparnir og friðarhreyfingin, fall kommúnismans í Evrópu, átakasvæði á miðausturlöndum, Ísrael og Palestínu, árásirnar 11. september og eftirmálar þess, Evrópusambandið, hnattvæðing, kvenréttindi, metoo og uppgangur Kína. Áfanginn byggir að miklu leyti á sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda, heimildaleit, verkefnavinnu, úrvinnslu og framsetningu efnis.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu atburðum mannkynssögunar á seinni hluta 20.- og upphafsárum 21. aldar
- sögulegum bakgrunni átaka og pólitískra deilna sem eiga sér stað í nútímanum
- samskiptum ríkja og hvernig stjórnmál þróast á alþjóðvísu
- félagslegum hreyfingum og áhrifum þeirra á samtímann
- hvernig stríð og átök hafa mótað samtímann
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa fræðilega texta á íslensku og ensku og og túlka merkingu þeirra
- tjá sig í ræðu og riti um söguleg málefni
- meta gildi ólíkra heimilda s.s. frumheimilda, fréttaveitna, vefmiðla, fræðirita o.fl.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir afleiðingum helstu atburða tímabilsins
- átta sig á áhrifum átakanna á alþjóðastjórnmál og samskipti ríkja
- koma þekkingu sinni og skilningi á efninu á framfæri með fjölbreyttum hætti
- geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um efni áfangans
- geta metið alþjóðleg átök út frá eigin forsendum og skilningi