LÍFF3VF05 - Vist- og umhverfisfræði

Undanfari : LÍFF2GR05 og EFNA2EH05
Námsgrein : Líffræði

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3

Í þessum valáfanga er er fjallað um helstu hugtök og undirstöðuatriði vistfræði og umhverfisfræði með áherslu á tengsl náttúrunnar og mannlegra athafna. Helstu efnisþættir áfangans eru: grunnhugtök vistfræðinnar, uppbygging vistkerfa, fæðukeðjur og fæðuvefir, orkuflæði og efnaflæði, vistfræðilegar hringrásir, líffræðilegur fjölbreytileiki, stöðugleiki og viðnám vistkerfa, mannleg inngrip í náttúruna, mengun og umhverfisálag, vistfræðilegar rannsóknir og sérstaða Íslands. Sérstök áhersla er lögð á eiturefnavistfræði, þar sem fjallað er um hegðun og áhrif eiturefna í náttúrunni, lífsöfnun, lífmögnun, hormónaraskandi efni og samspil efna og líffræðilegra þátta. Þá er fjallað um plast og plastmengun, eiginleika plasts sem efnis, örplast og áhrif plastmengunar á lífríki og vistkerfi. Kennsla í áfanganum er verkefnamiðuð og byggir á virkri þátttöku nemenda. Lögð er áhersla á skilning, greiningu og beitingu hugtaka fremur en utanbókarlærdóm. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni þar sem þeir greina raunveruleg umhverfis- og vistfræðileg viðfangsefni, meta áhrif mannlegra athafna og setja fram rökstuddar og raunhæfar lausnir.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hugtökum og undirstöðuatriðum vistfræðinnar
  • Orkuflæði og efnaflæði í vistkerfum og muninn þar á milli
  • Uppbyggingu og virkni fæðukeðja og fæðuvefa og hvernig litlar breytingar hafa áhrif
  • Efnafræðilegum hringrásum, einskum kolefnis-, niturs- og fosfórshringrásum
  • Helstu tegundum mengunar í lofti, vatni og jarðvegi og vistfræðilegum áhrifum
  • Grunnhugtökum eiturefnavistfræðinnar
  • Bráðum og langvinnum áhrifum eiturefna
  • Lífsöfnun og lífmögnun eiturefna í vistkerfum og hvernig efni safnast upp í fæðukeðjum
  • Eiginleikum plasts sem efnis
  • Vistfræðilegum áhrifum plastmengunar á lífríki, vistkerfi og fæðuvefi
  • Sérstöðu íslands og mikilvægi náttúruverndar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita helstu hugtökum vist- og umhverfisfræðinnar
  • Greina vistkerfi með tilliti til orsaka, afleiðinga og gagnverkandi ferla
  • Setja fram og túlka einföld líkön, t.d. Fæðuvefi og vistfræðilegar hringrásir
  • Safna og vinna úr gögnum sem tengjast vistfræðilegum og umhverfislegum viðfangsefnum
  • Spá fyrir um vistfræðileg áhrif á umhverfi út frá mannlegum athöfnum
  • Meta möguleg áhrif eiturefna á lífverur og vistkerfi út frá grunnatriðum eiturefnavistfræði
  • Vinna með heimildir á gagnrýninn hátt
  • Vinna sjálfstætt og í samvinnu með öðrum nemendum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Tengja vistfræðileg hugtök og ferli við raunveruleg umhverfis- og náttúruverndarmál
  • Geta tekið rökstudda afstöðu til umhverfisfræðilegra mála
  • Greina og útskýra vistfræðileg áhrif mannlegra athafna á vistkerfi og lífríki
  • Setja fram vistfræðilega raunhæfar og lausnamiðaðar tillögur sem taka mið af náttúrulegum ferlum
  • Afla sér frekari þekkingar á sviði umhverfisfræðinnar
  • Nýta þekkingu sína og færni til að undirbúa sig fyrir frekara nám á sviði vistfræði, umhverfisfræði og tengdra greina