LÍFF2ÞF05 - Þróunarfræði

Undanfari : LÍFF2GF04 eða LÍFF2GR05. Má taka samhliða.
Námsgrein : Líffræði

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2

Þessi valáfangi veitir nemendum innsýn í þróun lífs á jörðinni. Fjallað er um sögu þróunarfræðinnar og þróunarkenninguna, erfðafræði, náttúruval og aðlögun lífvera að umhverfi sínu. Sérstök áhersla er lögð á þróun mannsins, uppruna hans og þróunarferli.

Nemendur læra að þekkja einkenni lífvera og skyldleika þeirra. Þá fá nemendur tækifæri til að kynnast fylkingum lífvera og flokkunarfræðinni sem liggur að baki. Tegundamyndun verður skoðuð sérstaklega og nemendur þjálfast í að lesa tölulegar og myndrænar upplýsingar sem tengjast þróunarfræði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu hugtökum þróunarfræðinnar
  • sögulegu samhengi þróunarfræðinnar
  • náttúruvali og aðlögun tegunda að umhverfi
  • drifkrafti þróunar
  • erfðafjölbreytni og líffræðilegri fjölbreytni
  • flokkunarkerfi lífvera og helstu fylkingar
  • skyldleika tegunda og tegundamyndun
  • helstu kenningum um þróun lífvera
  • þróun mannsins og skyldra tegunda

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og túlka upplýsingar út frá tölulegum gögnum og myndum sem tengjast þróunarfræði
  • vinna með þróunartré og geta hannað einföld tré til að sýna þróunartengsl milli lífvera
  • vinna með hugtök og beita þeim við greiningu á líffræðilegum og þróunarfræðilegum fyrirbærum
  • greina og útskýra þróunarferla lífvera og vinna með dæmi úr náttúrunni til þess
  • flokka lífverur í helstu fylkingar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja þróun lífvera í samhengi við umhverfi þeirra
  • meta áhrif þróunar á fjölbreytileika lífvera og útskýra hvernig þróunarferli hafa mótað byggingu og hegðun lífvera í náttúrunni
  • tengja þróunarfræðilega þekkingu við daglegt líf og samfélag ásamt því að tengja hana við siðferðileg og samfélagsleg álitamál, t.d. varðandi líftækni, erfðabreytingar og verndun líffræðilegs fjölbreytileika
  • bera saman ólíkar kenningar um þróun lífvera og sýna fram á skilning og rökstyðja þær 
  • greina þróunarsögu mannsins í samhengi við steingervinga, erfðafræðilegar vísbendingar og samfélagsbreytingar
  • sýna fram á gagnrýna hugsun í tengslum við þróunarlíffræði, t.d. með því að greina og meta áreiðanleika heimilda og gagna
  • nýta samvinnu til að skoða flóknari viðfangsefni 
  • gera sér grein fyrir samspili þróunarfræði og annarra náttúrufræðigreina