LÍFF2ÖR05 - Örverufræði

Undanfari : LÍFF2GF04 eða LÍFF2GR05. Má taka samhliða.
Námsgrein : Líffræði

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2

Í þessum valáfanga kynnast nemendur fjölbreyttum heimi örvera, þar á meðal bakteríum, veirum, sveppum og frumdýrum. Fjallað er um byggingu, efnaskipti, æxlun og dreifingu örvera,sem og hlutverk þeirra í vistkerfum, iðnaði og heilsufari manna. Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi örvera í náttúrunni, áhrif þeirra á mannfólk og hvernig þær nýtast í læknisfræði og matvælaframleiðslu. Nemendur öðlast einnig verklega færni í meðhöndlun örvera og læra um vinnubrögð á rannsóknarstofu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnbyggingu og lífsferlum dreifkjörnunga og heilkjörnunga
  • grunnatriðum í flokkunarfræði örvera
  • notkun örvera í iðnaði, t.d. rannsóknum, lyfjaframleiðslu og matvælaframleiðslu
  • áhrifum örvera á heilsufar manna, t.d. smitleiðum og sjúkdómum af völdum örvera
  • helstu aðferðum við sjúkdómavarnir og sótthreinsun
  • stöðu veira í lífheiminum og samskiptum þeirra við hýsla
  • helstu aðferðum við einangrun, ræktun og greiningu örvera

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina helstu tegundir örvera á grundvelli einkenna þeirra
  • teikna einfalda skýringarmynd af dreifkjörnungi og heilkjörnungi og merkt helstu frumulíffæri
  • taka örverusýni og búa þau til ræktunar
  • vinna með örverur á öruggan hátt á rannsóknarstofu
  • skilja og túlka niðurstöður úr verklegum æfingum og tengja þær við fræðilega þekkingu með skýrslugerð

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja mikilvægi örvera í daglegu lífi og náttúru
  • tengja fræðilega þekkingu við raunveruleg viðfangsefni í umhverfi og heilsu 
  • meta áhrif örvera á heilsufar og samfélag
  • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. sýkingarhættu og sjúkdóma af völdum örvera 
  • gera sér grein fyrir samspili öruverufræði og annarra náttúrufræðigreina 
  • beita gagnrýninni hugsun við greiningu á upplýsingum tengdum örverufræði
  • aðlaga og nýta verklega færni á rannsóknarstofum
  • greina á milli skaðlegra og gagnlegra örvera og rökstyðja mikilvægi hvors tveggja