LÍFF2GR05 - Almenn líffræði

Námsgrein : Líffræði

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2

Í þessum áfanga er fjallað um helstu grunnhugtök líffræðinnar og tengsl þeirra við daglegt líf, umhverfi og samfélag. Áhersla er lögð á vísindaleg vinnubrögð, rannsóknaraðferðir og skýrslugerð ásamt því að nemendur öðlist færni í að afla gagna, vinna úr niðurstöðum og setja þær fram á skýran hátt.
Helstu viðfangsefni áfangans eru vistfræði og umhverfismál, lífrænar sameindir og efni lífvera, bygging og starfsemi fruma, örverur og smitsjúkdómar, frumuskipting, erfðafræði, þróunarfræði og flokkunarkerfi lífvera. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á fjölbreytileika lífsins, samspili lífvera og umhverfis og mikilvægi líffræði í nútímasamfélagi. Áfanginn undirbýr nemendur jafnframt undir frekara nám í líffræði og skyldum greinum.

 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grundvallaratriðum vísindalegrar aðferðar
  • sérkennum líffræðinnar sem fræðigreinar og tengslum hennar við aðrar greinar
  • grundvallarhugtökum líffræðinnar
  • grundvallaratriðum vistfræðinnar
  • helstu flokkum efna í lífverum
  • byggingu og starfsemi fruma
  • helstu kenningum um erfðir og þróun
  • helstu ríkjum og fylkingum lífvera

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa líffræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
  • gera rannsóknarskýrslu
  • lesa í tengsl milli lífvera í umhverfinu
  • skoða lífverur í náttúrunni og í smásjá
  • átta sig á einföldum erfðamynstrum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • auka skilning á fyrirbærum náttúru- og raunvísinda
  • leggja gróft mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu á gagnrýninn hátt
  • tengja undirstöðuþekkingu í líffræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
  • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. líffræðilegra þátta
  • afla sér frekari þekkingar á líffræðilegum viðfangsefnum