Lýsing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í áfanganum gefst nemendum kostur á að kynna sér það nýjasta í heimi bókmennta, hvort sem það eru íslensk eða erlend skáldverk. Nemendur gera grein fyrir þeim verkum sem þeir lásu í einkaviðtölum við kennara og í kynningu fyrir nemendahópinn. Í áfanganum er lögð mikil áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og að þeir vinni eftir ákveðinni áætlun sem þeir bera sjálfir ábyrgð á. Áfanginn byrjar á stuttu hraðlestrarnámskeiði en síðan mæta nemendur ýmist í einkaviðtöl eða hóptíma þar sem þeir eiga að kynna verkin sem þeir lásu. Loks vinna þeir að samningu eigin sögu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi lestrar
- helstu reglum hraðlestrar
- því hversu mikilvægt er að geta tekið út aðalatriði texta á skýran og markvissan hátt
- lögmálum skáldsögunnar og smásögunnar
- því hvernig skáldsagan endurspeglar samfélagið
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota hraðlestur og mismunandi lestrartækni við lestur ýmissa texta
- beita helstu hugtökum bókmenntafræðinnar þegar verið er að fjalla um og greina skáldverk
- flytja skýra, vel uppbyggða kynningu og geta lagt áherslu á meginþætti og atriði sem skipta máli
- spyrja efnislegra spurninga, greina og bera saman upplýsingar til að komast að niðurstöðu
- taka þátt í og stuðla að málefnalegum umræðum eða rökræðum um bókmenntir
- vinna að skapandi verkefnum þar sem lögmálum smásögunnar er beitt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- dýpka lesskilning sinn
- auka og bæta við orðaforða og málskilning
- dýpka skilning sinn á mismunandi samfélögum
- auka skilning sinn og þekkingu á mannlegu atferli í gegnum lestur skáldverka
- nýta sér sköpunarmátt íslenskunnar til að semja eigið verk.