- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Við lifum og hrærumst í heimi dægurmenningar hvort sem við áttum okkur á því eður ei. Eigum okkar uppáhaldsþætti og kvikmyndir en fúlsum við stöffi sem boomers mæla með. Teljum okkur trú um ágæti eigin tónlistarsmekks en hneykslumst leynt og ljóst yfir smekk annarra. En hvað ef við erum lítið annað en auðsveipir neytendur undirseldir markaðslögmálum sem stýra okkur inn á fyrirfram ákveðnar brautir neyslumenningar?
Við ætlum í þessum áfanga að velta fyrir okkur dægurmenningu (e. popular culture) og skoða ólíkar hliðar hennar með fjölbreyttum aðferðum. Kynntar verða hugmyndir og hugtök úr ólíkum greinum sem nýtast við greiningu á þeim krókum og kimum sem dægurmenning samtímans er samansett úr; fyrirbæri eins og meginstraumur og afþreyingariðnaður, kvikmyndir og tónlist, bókmenntir og auglýsingar, fjölmiðlar og samfélagsmiðlar, list og markaður svo eitthvað sé nefnt. Leikurinn er til þess gerður að við getum tekið gagnrýna afstöðu til þeirrar menningar sem við öll tökum þátt í.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: