ÍSLE1SD04 - Brennu-Njáls saga

Námsgrein : Íslenska

Lýsing

Kjarnaáfangi á starfsbraut
Einingafjöldi: 4 
Þrep: 1 

Í áfanganum er lögð áhersla á lestur einfaldrar útgáfu Brennu -Njáls sögu. Fjallað verður um helstu persónur í sögunni, atburði og gerð þjóðfélagsins á tímum Njálu. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar og fá nemendur tækifæri til að vinna með efnið á fjölbreyttan hátt. Nemendur auka les- og hlustunarskilning sinn og æfist í að skilgreina hugtök sem koma fram í textanum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • söguþræði og helstu persónum í Njálu
  • sögu íslands frá landnámsöld
  • gerð íslensks þjóðfélags á árunum 930-1300
  • aðstæðum fólks á þeim tíma sem sagan gerist

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • fjalla um efni Njálu
  • ræða gerðs þjóðfélagsins á tímum Njálu
  • nýta sér fjölbreyttar aðferðir við verkefnavinnu

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig munnlega og skriflega um efni Njálu
  • bera saman þjóðfélagsgerðina þá og nú
  • nota orðforða á fjölbreyttan hátt

 

Námsmat: 

Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.