Lýsing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Áfanginn er framhald af fyrsta stigi (ÍSAT1ÍA05) þar sem haldið er áfram að byggja upp sjálfstraust í talmáli. Áhersla færist yfir í að dýpka samtalið, segja frá daglegum venjum og bregðast við fjölbreyttari aðstæðum í daglegu lífi. Unnið er með flæði í tali og fjölbreyttari setningagerð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Orðaforða sem tengist daglegu lífi, áhugamálum og vinnu/skóla.
- Algengum orðasamböndum sem notuð eru í samræðum um kunnugleg efni.
- Undirstöðuatriði í málfræði mælts máls til að tengja saman setningar.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Taka þátt í einföldum samræðum og halda uppi stuttu samtali um efni sem tengist innihaldi áfangans.
- Segja frá daglegum venjum sínum og áhugamálum á skýran hátt.
- Skilja aðalatriði í mæltu máli þegar talað er hægt og skýrt um algeng málefni.
- Nota fjölbreyttari spurningar til að dýpka samskipti við aðra.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Bjarga sér í margvíslegum daglegum aðstæðum, s.s. í verslunum, þjónustu eða viðburðum.
- Miðla einföldum staðreyndum og upplýsingum til annarra í samtali.
- Eiga frumkvæði að stuttum samræðum á íslensku í sínu nánasta umhverfi.