ÍSAN2ÍF05 - Framburður, hlustun og lestur 2

Undanfari : ÍSAN1ÍC05
Námsgrein : Íslenska sem annað mál

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2 

Áfanginn er ætlaður nemendum sem vilja ná auknu sjálfstæði í tungumálinu. Markmið áfangans er að nemendur geti bjargað sér í flestum aðstæðum á Íslandi. Lögð er áhersla á að fylgjast með fréttum og sjónvarpsefni til að skilja betur það sem gerist í samfélaginu. Nemendur æfa sig í að endursegja það sem þeir sjá og heyra í fjölmiðlum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða sem tengist algengum fréttum og samfélagsmálum.
  • undirstöðuatriðum í íslenskri menningu og siðum.
  • málfræði sem hjálpar til við að tengja saman setningar og búa til samhangandi mál.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og skilja venjulega texta og fréttir um efni sem hann þekkir.
  • skilja aðalatriði í fréttatímum og einföldum sjónvarpsþáttum.
  • tala um sín áhugamál og reynslu á skýran hátt.
  • skrifa texta þar sem hann lýsir atburðum og reynslu sinni.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í samtölum um kunnugleg efni án þess að hafa mikið fyrir því.
  • skilja það mikilvægasta í útvarpi og sjónvarpi þegar talað er skýrt.
  • segja frá eigin skoðunum og áformum á einfaldan hátt.
  • miðla upplýsingum til annarra um málefni líðandi stundar.