ÍSAN2ÍD10 - Íslenska sem annað mál 4

Undanfari : ÍSAN2ÍA10
Námsgrein : Íslenska sem annað mál

Lýsing

Einingafjöldi: 10
Þrep: 2

Áfanginn er ætlaður nemendum sem hafa lokið áföngunum ÍSAN1ÍA10, ÍSAN1ÍD10, ÍSAN2ÍA10 (lokið þremur önnum á íslenskubraut). Unnið er með fjölbreytta texta sem tengjast menningu og náttúru Íslands, heilsu, atvinnumálum og vinnuumhverfi. Nemendur fá þjálfun í að rita texta um þessi sömu málefni og hlusta á upplesna texta. Haldið er áfram að vinna með þau málfræðiatriði sem koma fyrir í síflóknari textum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða sem tengist daglegu lífi á Íslandi.
  • orðaforða sem tengist umræðu um heilsu, atvinnumál og ferðalög.
  • orðaforða sem tengist ólíkum þáttum íslensks samfélags.
  • mæltu máli á íslensku á þeim hraða sem tíðkast meðal Íslendinga.
  • undirstöðuatriðum íslenskrar málfræði

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa fjölbreyttar gerðir texta, hagnýta, menningarlega og sögulega.
  • beita námsaðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefni t.d. lesa úr hvernig málfræði birtist í texta.
  • tjá sig skriflega þar sem hann virkjar setningagerð, orðaforða og málfræðikunnáttu sína kunnáttusamlega.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • lesa ýmsa texta á daglegu máli sér til gagns og gamans.
  • tileinka sér almennan orðaforða um daglegt líf á Íslandi.
  • öðlast innsýn í daglegt líf hefðbundinna Íslendinga, áhugamál þeirra, störf, ferðalög o.þ.h.
  • taka þátt í samtölum við innfædda málnotendur um daglegt líf á Íslandi.
  • beita málfræðireglum sem hann hefur lært og æft í virkri málnotkun, bæði ritaðri og mæltri.
  • leggja stund á nám ætlað íslenskum nemendum á framhaldsskólastigi.