ÍSAN2ÍC05 - Framburður, hlustun og lestur 3

Undanfari : ÍSAN1ÍF05
Námsgrein : Íslenska sem annað mál

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2 

Áfanginn er ætlaður nemendum sem hafa lokið ÍSAN1ÍC05 og ÍSAN1IF05. Markmið áfangans er að auka sjálfstraust nemenda í að nota íslensku í daglegu lífi. Lögð er áhersla á að skilja mælt mál og bæta framburð. Nemendur byrja að kynnast íslenskum miðlum, lesa mjög einfaldar fréttir og horfa á stutta sjónvarpsþætti til að æfa hlustun.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • algengum orðaforða úr daglegu lífi og einföldum fréttum.
  • undirstöðuatriðum í framburði og áherslum.
  • einföldum leiðum til að tjá sig um áhugamál og líðan.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota orðaforðann sem hann hefur lært í náminu.
  • lesa stutta og einfalda texta úr fréttum.
  • skilja aðalatriði í einföldu sjónvarpsefni (t.d. Krakkarúv eða veðurfréttir).
  • hlusta á og skilja einfalt mælt mál um kunnugleg efni.
  • tala við aðra um efni sem hann þekkir.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bjarga sér í algengum aðstæðum á Íslandi.
  • skilja einfaldar upplýsingar í sjónvarpi og útvarpi.
  • segja sína skoðun á einfaldan hátt.
  • skrifa stutta texta og miðla eigin reynslu.