ÍSAN2ÍA10 - Íslenska sem annað mál 3

Undanfari : ÍSAN1ÍD10
Námsgrein : Íslenska sem annað mál

Lýsing

Einingafjöldi: 10
Þrep: 2

Áfanginn er ætlaður nemendum sem hafa lokið ÍSAN1ÍA10 og ÍSAN1ÍD10 sem eru áfangar á 1. ári á íslenskubraut. Unnið er með fjölbreytta texta sem tengjast lífi í íslensku þjóðfélagi, sögu þess, menningu o.fl. Aukin áhersla er lögð á kennslu í málfræði sem m.a. kemur fyrir í textum sem unnið er með. Nemendur fá þjálfun í að tjá sig í sífellt vaxandi máli í mæltu og rituðu máli, þ.e. munnlega og skriflega.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans.
  • ólíkum viðhorfum, reglum og venjum á Íslandi nú til dags og tengslum þeirra við menningu þjóðarinnar.
  • merkilegum atburðum í sögu þjóðarinnar og menningarverðmætum hennar.
  • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á framhaldsskólastigi.
  • að leita upplýsinga á netinu og víðar.
  • ýmsum málfræðihugtökum og reglum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa fjölbreyttar gerðir texta, hagnýta, menningarlega og sögulega.
  • beita námsaðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefni t.d. lesa úr hvernig málfræði birtist í texta.
  • tjá sig munnlega skýrt og skiljanlega um undirbúið málefni.
  • tjá sig skriflega þar sem hann virkjar setningagerð, orðaforða og málfræðikunnáttu sína kunnáttusamlega.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak frásagna, söguþráð og samhengi í margs konar texta.
  • taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu, skýra erindi sín og afla sér upplýsinga eftir aðstæðum.
  • tjá sig rétt og skilmerkilega um efni sem hann hefur kynnt sér.
  • geta endursagt í eigin orðum frásögn eða inntak greinar sem hann hefur heyrt eða lesið.