ÍSAN1ÍF05 - Framburður, hlustun og lestur 2

Undanfari : ÍSAN1ÍC05
Námsgrein : Íslenska sem annað mál

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1

Áfanginn er ætlaður nemendum sem lokið hafa einni önn í íslensku á íslenskubraut (lokið áfanganum ÍSAN1ÍC05). Markmið áfangans er að nýta þá þekkingu sem nemendur hafa í íslensku til þess að örva skilning, hlustun, skrif, rökhugsun og tal. Lögð er sérstök áhersla á framburð málhljóða, hlustun, skrift og lestur.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem er notaður til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.
  • réttum framburði, áherslum og hrynjandi tungumálsins.
  • mismunandi tjáningarmáta.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita orðaforða sem hann ræður yfir.
  • lesa mismunandi texta.
  • hlusta á og skilja upplesinn texta
  • taka þátt í almennum umræðum um efni áfangans.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum.
  • skilja einfalt mælt mál.
  • tjá skoðun sína.
  • miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum.