ÍSAN1ÍD05 - Íslenska sem annað mál 2
Undanfari : ÍSAN1ÍA10
Námsgrein
: Íslenska sem annað mál
Lýsing
Einingafjöldi: 10
Þrep: 1
Áfanginn er framhald af fyrsta stigi (ÍSAN1ÍA10) og hentar þeim sem hafa öðlast grunnfærni í íslensku. Áhersla er lögð á að dýpka undirstöðuatriði tungumálsins svo nemendur geti bjargað sér í fjölbreyttari daglegum aðstæðum. Markmiðið er að efla enn frekar þekkingu á íslenskri málfræði, setningagerð og orðaforða, ásamt því að auka innsýn í íslenska menningu. Unnið er jafnt með alla fjóra grunnþætti tungumálsins: hlustun, lestur, tal og ritun.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ræða um daglegt líf, umhverfi og áhugamál.
- Grundvallarþáttum íslenska málkerfisins sem nauðsynlegir eru til að ná markmiðum áfangans.
- Almennum kurteisisvenjum og málnotkun sem tengist mismunandi aðstæðum í íslensku samfélagi.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt.
- Fylgja einföldum fyrirmælum og nota helstu kveðjur og kurteisisform af öryggi.
- Lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða og vinna úr þeim upplýsingar á mismunandi hátt.
- Taka þátt í einföldum samræðum um efni sem tengist innihaldi áfangans.
- Segja frá sjálfum sér, daglegum venjum og umhverfi sínu á einfaldan en skýran hátt.
- Skrifa stuttan og einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi.
- Beita orðaforða, málnotkun og framburði á sem réttastan hátt.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Nota einföld orðasambönd og setningar til að segja frá búsetu sinni og fólki sem hann þekkir.
- Skilja leiðbeiningar í kennslu og geta farið eftir athugasemdum kennara.
- Greina og draga út einfaldar upplýsingar í mæltu máli og stuttum textum.
- Taka þátt í einföldum samræðum og gera sig skiljanlegan í daglegum aðstæðum.
- Segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni.
- Rita íslensku á einföldu formi, svo sem skilaboð eða stuttar lýsingar.