ÍSAN1ÍC05 - Framburður, hlustun og lestur 1

Námsgrein : Íslenska sem annað mál

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1

fanginn er ætlaður byrjendum í íslensku og engrar kunnáttu er krafist. Nemendur kynnast uppbyggingu tungumálsins með hlustun, lestri og samræðum eftir því sem orðaforðinn leyfir. Lögð er sérstök áhersla á framburð málhljóða, hlustun, skrift og lestur.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans.
  • grundvallarþáttum íslenska málkerfisins.
  • framburði íslenskra málhljóða.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stafa orð.
  • bera fram orð og setningar.
  • beita hlustun til að vinna úr upplýsingum í mæltu má
  • skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi.
  • skrifa texta eftir upplestri.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina einfaldar upplýsingar í mæltu og rituðu máli.
  • tjá sig um einföld atriði á skýran hátt.
  • rita íslensku á mjög einföldu formi.
  • skilja einfalda texta.