Lýsing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Áfanginn er ætlaður byrjendum í íslensku þar sem megináhersla er lögð á kerfisbundna uppbyggingu orðaforða. Markmiðið er að nemendur tileinki sér orðaforða sem tengist daglegu lífi og nánasta umhverfi þeirra. Fjallað er um skólaumhverfið, fjölskylduna, matvæli, líkamann, heilsu og helstu hátíðir. Kennslan fer fram með fjölbreyttum hætti þar sem notast er við gagnvirka tækni, myndrænt efni og leiki til að festa orðin í minni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Orðaforða sem tengist daglegu lífi og nánasta umhverfi nemandans.
- Heitum á algengum hlutum í skólanum, litum og fjölskyldutengslum.
- Hugtökum tengdum mat, fatnaði, líkamanum og heilsu.
- Grunnorðaforða sem tengist stærðfræði og helstu hátíðum á Íslandi.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða og vinna úr þeim upplýsingar.
- Taka þátt í einföldum samræðum þar sem nýttur er sá orðaforði sem farið er yfir í áfanganum.
- Skrifa stuttan og einfaldan texta um sjálfan sig og nánasta umhverfi sitt.
- Þekkja og nota skólasagnorð og önnur algeng sagnorð í réttu samhengi.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Skilja einfaldar leiðbeiningar í kennslu og geta farið eftir leiðbeiningum kennara.
- Skilja einfalda texta og draga úr þeim helstu upplýsingar.
- Tjá sig um persónulega hagi og kunnugleg málefni með þeim orðaforða sem kenndur er í áfanganum.