ÍSAN1ÍA10 - Íslenska sem annað mál 1
Námsgrein
: Íslenska sem annað mál
Lýsing
Einingafjöldi: 10
Þrep: 1
Áfanginn er ætlaður byrjendum í íslensku. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist helstu undirstöðuatriði tungumálsins og geti bjargað sér í einföldum daglegum aðstæðum. Markmiðið er að efla þekkingu á íslenskri málfræði, setningagerð og grunnfundaforða, ásamt því að kynna nemendum íslenska menningu og siði. Unnið er jafnt með alla fjóra grunnþætti tungumálsins: hlustun, lestur, tal og ritun.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Grunnorðaforða sem tengist sjálfum sér, fjölskyldu og nánasta umhverfi.
- Helstu grundvallarþáttum í íslensku málkerfi, svo sem beygingu nafnorða og sagnbeygingu í nútíð.
- Einföldum kurteisisvenjum og kveðjum í íslensku samfélagi.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Skilja mjög einfalt talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt.
- Nota helstu kveðjur, kynna sig og bregðast við einföldum spurningum.
- Lesa stutta og einfalda texta með algengum orðaforða sem snýr að daglegu lífi og áhugamálum.
- Taka þátt í stuttum samræðum á einfaldan hátt.
- Skrifa stuttan texta um sjálfan sig, t.d. nafn, aldur, búsetu og fjölskylduhagi.
- Beita framburði þannig að mál hans sé skiljanlegt í einföldum samskiptum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Nota einföld orðasambönd til að lýsa búsetu sinni og fólki sem hann þekkir.
- Fylgja einföldum fyrirmælum kennara og skilja helstu skilaboð í kennslustofu.
- Finna sértækar upplýsingar í einföldu hlustunarefni eða stuttum textum (t.d. skiltum eða tilkynningum).
- Gera sig skiljanlegan í daglegum aðstæðum, s.s. í búðum eða við kynningu.
- Rita einföld skilaboð eða fylla út eyðublöð með persónuupplýsingum.