Lýsing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í áfanganum eru notaðar ýmsar aðferðir við prjón, hekl o.fl. Nemendur læra grundvöll hönnunar og að fara eftir uppskriftum að eigin vali. Nemendur nota ýmsar aðferðir við að vinna nytjahluti og skrautmuni. Nemendur vinna að sjálfstæðum verkefnum þar sem þeir byggja á aðferðum sem þeir hafa unnið með í undanförnum áföngum. Lokaverkefni unnið eftir hugmyndum nemenda.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- í hverju hönnun felst bæði fyrir fatnað og textílvörur
- hugmyndum að mismunandi munstrum á mismunandi hátt
- hvernig litablöndun og litaskalar tengjast textílhönnun
- endurvinnslu á flíkum
- skissu- og hugmyndavinnu að flíkum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna hugmyndir að flíkum úr garni og koma þeim frá sér á vandaðan hátt
- vinna með munstureiningar og setja þær saman í mismunandi munstur
- setja saman liti út frá litafræði
- afla sér upplýsinga um hönnuði og listamenn
- geta breytt flíkum með endurvinnslu í huga.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- koma til skila hugmyndum að fatnaði
- kynna hönnun sína og hugmyndir á bak við hana.
- velja rétt verkfæri fyrir verkefni
- skoða verk prjónahönnuða og nýta þau sem innblástur fyrir sín verk
- búa til uppskrift sem er skrifuð, teiknuð og sett á netið
- breyta gömlum fötum í eitthvað annað svo notagildið breytist