FRAN1FC05 - Franska 3

Undanfari : FRAN1FB05
Námsgrein : Franska

Lýsing

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1

Franska 3: Menning og staðhættir frönskumælandi landa, daglegt líf og ferðalög

Viðfangsefni undanfaranna eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Textar verða smám saman lengri og þyngri. Orðaforði er aukinn og nemendur þjálfast í nýjum málfræðiatriðum. Samhliða vinnu með aðalkennslubók vinna nemendur með fjölbreytt efni úr ýmsum áttum og auk þess einfalda skáldsögu og leysa ýmis verkefni út frá henni. Hvatt er til aukins sjálfstæðis nemenda í vinnubrögðum og að þau nýti sér ýmis hjálpargögn, s.s. orðabækur, málfræðibækur og netið við upplýsingasöfnun.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
  • grundvallarþáttum franska málkerfisins
  • frönskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu, helstu samskiptavenjur og siði þjóðanna
  • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og vera meðvitaðri en áður um muninn á þessum málsniðum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • fylgjast með frásögnum eða samtölum um almenn efni eða sérhæfðari málefni sem nemandi þekkir þar sem talað er skýrt og áheyrilega
  • skilja texta um almennt og sérhæfðara efni sem fjallað er um í áfanganum og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum hverju sinni
  • fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatextum
  • taka þátt í almennum samræðum um kunnugleg efni og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
  • segja frá á skýran hátt og halda stutta kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt
  • skrifa samfelldan texta um ýmis efni sem unnið er með í áfanganum og geta betur en áður dregið ályktanir og tjáð eigin skoðanir
  • nýta sér ýmis hjálpargögn í frönskunáminu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fylgjast með frásögnum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er mjög kunnuglegt
  • afla sér ýmissa upplýsinga úr mæltu máli, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í námi og starfi
  • tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi
  • lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
  • takast á við flestar algengar aðstæður í almennum samskiptum og geta almennt bjargað sér á málinu
  • segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu og áætlunum
  • miðla á einfaldan hátt efni, bæði munnlega og skriflega