ENSK2DN05 - Dystopian Fiction

Undanfari : ENSK2AM05
Námsgrein : Enska

Lýsing

Í áfanganum fá nemendur tækifæri til að kynnast distópískum bókmenntum svo sem 1984 eftir George Orwell, The Handmaid’s Tale eftir Margaret Atwood og The Hunger Games eftir Suzanne Collins. Nemendur öðlast færni í að greina og bera saman bækurnar og hliðstæður þeirra í raunheimum. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi B1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilnings á:

  • bókmenntategundinni Dystopian Fiction
  • sögu og þróun dystópískra bókmennta
  • mismunandi undirflokkum dystópískra bókmennta
  • tengslum dystópískra bókmennta við sinn samtíma og menningu
  • mismunandi höfundum dystópískra bókmennta  

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og skilja dystópískar bókmenntir eftir ólíka höfunda
  • fjalla um og greina dystópískar bókmenntir í umræðum og kynningum
  • greina og fjalla um kvikmynda- og sjónvarpsefni út frá dystópískum sögum
  • skrifa formlega og óformlega texta á ensku um viðfangsefnin
  • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við efni áfangans 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur afla sér til að:

  • dýpka lesskilning sinn á ensku
  • mynda sér skoðanir og geta rökstutt þær í umræðum, kynningum og verkefnum
  • hafa yfirsýn yfir bókmenntategundina dystópískar bókmenntir og undirflokka hennar
  • miðla á skapandi hátt hugmyndum og skoðunum á bókmenntum á ensku