EÐLI3RS05 - Rafsegulfræði
Undanfari : EÐLI2GR05
Námsgrein
: Eðlisfræði
Lýsing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með og öðlast skilning á hugtökum og þekkingu úr rafsegulfræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur öðlast leikni í að setja fram og túlka myndir og gröf innan rafsegulfræðinnar m.a. við hleðslu/afhleðslu þéttis í verklegri æfingu og geta útskýrt niðurstöður út frá verkseðli/fyrirmælum kennara. Nemendur öðlast leikni í að nota markverða stafi og viðeigandi einingar innan rafsegulfræðinnar ásamt því að nota flókna stærðfræði við úrlausn verkefna. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Byggt er á grundvallarþekkingu á fræðum sem nemandinn hefur aflað sér í kjarnaáfanganum EÐLI2GR05. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru sérhæfðir innan rafsegulfræðinnar. Þeir eru: rafhleðsla og rafsvið, rafspenna, þéttar og geymsla raforku, rafstraumur og lögmál Ohms, jafnstraumsrásir, segulmagn, span og lögmál Faradays og rafsegulbylgjur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- því hvernig rafhleðsla hlutar á upptök sín í hleðslum öreindanna
- sviðshugtakinu og rafsegulbylgjum
- helstu hugtökum sem notuð eru í rafsegulfræðinni og SI-einingum þeirra
- helstu lögmálum í rafsegulfræði, svo sem lögmálum Coulombs, Ohms, Laplace og Faradays og lögmáli um varðveislu heildarhleðslunnar
- verkun nokkurra tækja sem byggja á lögmálum rafsegulfræðinnar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fara með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum
- beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi
- leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum
- vinna með fjölmæla og ýmsa rafhluti við að framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra, m.a. með tölvuforritum eins og Word og Excel
- setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
- nota námsefni og gögn á markvissan hátt
- yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið
- meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
- tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar