DANS3UH03 - Undirbúningur fyrir háskólanám á Norðurlöndum
																																
	
	
													
											
							Undanfari : DANS2LR04
						
																
							Námsgrein
							: Danska
						
														 
					
		
					
				Lýsing
				Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur vinni með flóknari texta en áður. Áhersla er lögð á að hver nemandi byggi upp orðaforða og þekkingu sem tengist eigin áhugasviði og framtíðaráformum og kynni sér aðstæður og möguleika í hverju landi fyrir sig. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum í formi munnlegra kynninga og minni ritunarverkefnum. Í þessum áfanga munu nemendur kynna sér ýmsu skóla og lýðháskóla á norðurlöndunum. Áfanginn er símatsáfangi og námsmat fjölbreytt.
 
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
- ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska/norræna menningu
- orðaforða til undirbúnings náms á háskólastigi
 
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður og algengustu orðasambönd sem einkenna það
- lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnis
- tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
 
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
- nýta ritaða texta á mismunandi hátt
- geta tjáð sig betur og tekið þátt í samræðum 
- geta talað lipurlega og með nægilega góðum framburði, hrynjanda og áherslum til að vel skiljist 
- tjá sig skýrt og lipurlega fyrir áheyrendum um efni sem hann hefur kynnt sér