DANS2ML03 - Málfræði og lestur
Undanfari : Grunnskólaeinkunn B eða hærra
Námsgrein
: Danska
Lýsing
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur vinni með fjölbreytta texta. Unnið er með orðaforða m.a. tengdan daglegu lífi, ferðamennsku og menntakerfi. Áhersla er lögð á lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast danskri menningu. Nemendur vinna sjálfstætt að fjölbreyttum verkefnum í formi kynninga og ritunarverkefna.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- danska menningarsvæðinu
- dönskum textum, t.d. samtöl, fréttir og stuttar sögur
- tjáð sig munnlega og skriflega um sjálfa sig, daglegt líf og kunnugleg viðfangsefni
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður sem og algengustu orðasambönd sem einkenna það
- lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnisins
- tjá sig munnlega skýrt um málefni sem nemandi sem hefur kynnt sér
- beita meginreglum danskrar málfræði og setningafræði
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni
- tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt
- geta tekið þátt í einföldum samræðum á dönsku um daglegt líf, t.d. skóla, áhugamál og fjölskyldu
- geta skrifað stuttan texta á dönsku, svo sem tölvupóst, lýsingu á sjálfum sér eða einfalt skoðanabréf
- geta hlustað á og greint meginatriði í stuttum dönskum hljóð- og myndefnum, t.d. viðtölum og fréttabútum, og brugðist við þeim á viðeigandi hátt
(síðast uppfært 2.06.2025)