FÉLA2ST05 - Stjórnmálafræði, fjölmiðlar og upplýsingamengun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FÉLV1SJ06
Í áfanganum verður fjallað um völd í samfélaginu. Fyrst er stjórnmálafræðin kynnt sem fræðigrein. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum sem eru notuð í fræðigreininni og læri að greina helstu hugmyndastrauma stjórnmálanna. Helstu stjórnmálastefnur verða kynntar og greindar út frá „vinstri-hægri“ kvarðanum og lagt mat á þær út frá afstöðu þeirra til breytinga og gilda. Fjölmiðlar hafa oft verið kallaðir fjórða valdið í samfélaginu og því verður samspil stjórnmála og fjölmiðla til umfjöllunar auk upplýsingamengunar og falsfrétta.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu viðfangsefnum stjórnmálafræðinnar
  • helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar: Þjóðernisstefnu, stjórnkerfi, vald, fullveldi, mannréttindi og lýðræði
  • helstu hugmyndakerfum stjórnmálanna: Róttækni, frjálslyndi, íhaldsstefnu, afturhaldsstefnu, stjórnleysisstefnu og femínisma
  • hvernig stjórnkerfum og stjórnmálastefnum er ætlað að leysa samfélagsleg viðfangsefni
  • fjölmiðlum samfélagsins og þeim öflum sem móta þá
  • áhrifum fjölmiðla á viðhorf og hegðun einstaklinga s.s. umfjöllun um fjölmiðla sem „fjórða valdið“
  • hugtökunum falsfréttir og samfélagsmiðlar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita hugtökum stjórnmálafræðinnar á raunveruleg viðfangsefni hér á landi og erlendis
  • greina á milli og meta ólíkar kenningar um stjórnkerfi og hugmyndarstefnur
  • afla upplýsinga um stjórnmál og fjölmiðla og setja í fræðilegt samhengi
  • meta efni úr fjölmiðlum á gagnrýninn hátt
  • miðla efni með tilliti til ólíkra markhópa og fjölmiðla

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta útskýrt hvernig stjórnmál hafa áhrif á líf hans og aðstæður
  • geta tekið þátt í rökræðum um samfélagsleg álitamál
  • geta fundið og notað upplýsingar um stjórnmál hér á landi og erlendis
  • geta útskýrt mun áreiðanlegra heimilda og falsfrétta
  • geta lagt gagnrýnið mat á það efni sem birtist í fjölmiðlum
  • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is