SAGA3KA05 - Land, svæði, ríki: kína og suðaustur-asía

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA1MU05 og SAG2MN05
Hugmyndin er að hægt sé að breyta efnisþáttum áfangans með tilliti til áhuga kennara og/eða nemenda. Hér er áfanginn kynntur sem þættir úr sögu Kína og Austur - Asíu en hægt er að hugsa sér fjölmörg önnur viðfangsefni. Í áfanganum eru fyrst og fremst kynntir valdir þættir úr sögu Asíu, einkum Kína þessa vaxandi stórveldis álfunnar en einnig landanna í Suðaustur - Asíu. Farið er lauslega yfir sögu Kína alveg frá nýsteinöld til okkar daga. Aðaláherslan verður þó á 19. og 20. öld. Ópíumstríðið, skipting Kína í áhrifasvæði og fall keisaraveldisins, borgarastyrjaldir, heimsstyrjöld, kommúnistastjórnin, Tíbet og Xinkiang, menningarbylting og efnahagsundur eru allt efni sem verða skoðuð. Ef færi gefst verður einnig litið til sumra nágrannalanda Kína í Suðaustur - Asíu s.s. Víetnams, Kambódíu o.fl. Áfanginn er fyrst og fremst hugsaður til að dýpka þekkingu á Kína, sögu þess og Suðaustur - Asíu. Sagan, menningin og trúarbrögðin verða brotin til mergjar ef unnt er.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvar viðkomandi lönd og svæði eru á hnettinum
  • helstu þáttum í sögu viðkomandi landa/svæða

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa sagnfræðilega texta á íslensku og ensku og e.t.v. fleiri málum um sögu, stjórnmál og menningu viðkomandi landa
  • nýta internetið og bókasöfn til að ná tökum á mismunandi efnisþáttum áfangans
  • nota ólíkar heimildir til að skrifa texta og taka saman efni

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera sér grein fyrir sögulegum bakgrunni og öðlast þannig skilning á stöðu mála í viðkomandi löndum/ríkjum/svæðum í nútímanum
  • geta áttað sig á áhrifum ríkjanna á alþjóðastjórnmál og alþjóðasamskipti
  • þekkja helstu styrkleika og veikleika ríkjanna, bæði heima og á alþjóðavettvangi
  • koma þekkingu sinni og skilningi á efninu á framfæri með fjölbreyttum hætti
  • geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum um ríkin/löndin/svæðin sem fjallað er um í áfanganum
Nánari upplýsingar á námskrá.is