HEIL1HG01 - Heilsulæsi 1

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Áfanginn byggist upp á alhliða hreyfingu og heilsurækt með áherslu á almenna grunnþjálfun. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til að meta eigið líkamsþrek. Í bóklegum og verklegum hluta áfangans er lögð áhersla á þýðingu og áhrif þjálfunar á líkamann og aðferðir til að efla heilsulæsi. Námið er í formi staðkennslu og vendikennslu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu og mikilvægi grunnþátta í almennri líkams- og heilsurækt
  • helstu hugtök og eðli upphitunar, styrktar- og þolþjálfunar
  • fjölbreyttni allra þátta til eflingar líkama og heilsu
  • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
  • neikvæðum áhrifum ávana- og vímuefna á líkamann

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tileinka sér fjölbreytta grunnþjálfun allra þátta
  • taka þátt í markvissri þjálfun á eigin líkamsþreki og almennri líkams- og heilsurækt
  • taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
  • mæla þol, styrk og liðleika
  • taka þátt í hreyfingu og æfingum sem stuðla að bættri líkamsbeitingu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skipuleggja og leysa af hendi verkefni sem snúa að heilsueflingu
  • stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega-, andlega- og félagslega heilsu og vellíðan
  • mæla og meta eigið þol, styrk og liðleika
  • taka þátt í umræðum um ávana- og fíkniefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is