- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Skólaárið 2022-2023 verður boðið uppá þjónustu skólahjúkrunarfræðinga í öllum framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt samningi sem gerður var milli heilsugæslu og framhaldsskóla. Þjónustan er kostuð af tímabundnu fjármagni til heilbrigðisstofnana til að auka geðheilbrigðisþjónustu við framhaldsskólanema. Þjónustan er hugsuð sem viðbót við stuðningsþjónustu sem nú þegar er til boða í skólunum.
Ásdís er með viðtalsherbergi á 2. hæð í Miðbæjarskólanum.
Skólahjúkrunarfræðingur:
Veitir viðtöl og ráðleggingar um heilbrigði og líðan
Leiðbeinir hvert skal leita í heilbrigðiskerfinu og veitir ráðgjöf varðandi heilbrigðisþjónustu sem er í boði
Einstaklingsfræðsla um næringu, svefn, kynheilbrigði og hreyfingu.
Metur veikindi og meiðsli
Hægt er að bóka viðtalstíma á INNU
Ekki hika við að hafa samband - allar spurningar eiga rétt á sér!