SÁLF3GE05 - Geðheilsa

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SÁLF2IS05
Áfanginn fjallar um geðheilsu og geðræn vandamál. Fjallað er um almennt geðheilbrigði og geðrækt bæði út frá sálfræðilegum kenningum og læknisfræðilega líkaninu. Lögð er áhersla á að nemendur átti sig á samspili líkamlegra og andlegra þátta í tengslum við geðheilbrigði og þróun geðraskana. Nemendur kynnast leiðum til að verjast streitu og taka á afleiðingum hennar. Einnig er fjallað um ýmsar geðraskanir og helstu meðferðarúrræði við þeim. Nemendur afla sér upplýsinga um geðheilsugæslu og þá meðferð sem er í boði á Íslandi. Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist skilning á geðheilsu, geðrækt og eðli geðraskana svo þeir skilji hvernig þeir geta tekið ábyrgð á eigin geðheilbrigði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • geðheilsu og geðröskunum
  • mismunandi nálgun sálfræðinnar á geðheilsu í samanburði við líffræði
  • helstu hugtökum og kenningum geðsálfræðinnar
  • framlagi geðsálfræðinnar innan sálfræðinnar og til samfélagsins

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
  • nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
  • miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
  • sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
  • beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
  • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
  • geta tekið þátt í rökræðum um málefni sem tengjast sálfræðinni
Nánari upplýsingar á námskrá.is