ENSK3YN03 - Yndislestur á ensku fyrir lengra komna

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK2UK05
Í þessum áfanga gefst nemendum kostur á að lesa og ræða fjölbreytt bókmenntaverk sem skrifuð hafa verið á ensku. Nemendur velja fjórar bækur af lista í samráði við kennara og gera grein fyrir þeim munnlega í einkaviðtölum. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi B2 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • enskum orðaforða sem tengist bókmenntaumfjöllun
  • mismunandi stíltegundum bókmenntaverka
  • stílbrögðum höfunda
  • persónusköpun, uppbyggingu og framvindu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa enskar bækur til skilnings og ánægju
  • nota orðaforða bókmennta til að fjalla um skáldsögur á ensku
  • segja frá á skipulagðan og skýran hátt
  • fjalla um, bera saman og greina skáldsögur og persónur
  • greina þemu og stílbrögð

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • dýpka lesskilning sinn á ensku
  • geta lesið á milli á milli lína og túlkað texta
  • mynda sér skoðanir út frá lestri og geta rökstutt þær
  • auka skilning sinn á mannlegri hegðun og samfélögum
Nánari upplýsingar á námskrá.is