ÞÝSK2YN03 - Yndislestur og talað mál

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: ÞÝSK1ÞC05
Markmiðið er að nemendur lesi þýsku sér til ánægju og gagns og þjálfist í að nota tungumálið til að tala um efni sem þeir hafa lesið og kynnt sér. Unnið verður með styttri bækur, ævintýri, barnabækur, tímaritsgreinar og efni á netinu. Nemendur velja að stórum hluta það efni sem þeir vinna með. Í upphafi áfangans eru nokkrar hefðbundnar kennslustundir þar sem efnisflokkar og vinnubrögð eru kynnt. Eftir það vinna nemendur hver fyrir sig en geta leitað aðstoðar kennara. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og góða mætingu. Áfanginn er símatsáfangi þar sem nemendur kynna verkefni sín í viðtölum við kennara og vinna skriflegar greinargerðir sem mynda safnmöppu sem skilað er í lok annar. Hægt er að velja áfangann sem 3 eða 5 einingar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ólíkum textagerðum, s.s. styttri bókum, ævintýrum, barnabókum, tímaritsgreinum og efni á netinu
  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
  • notkun þýsku til að mæta markmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega
  • mannlífi og menningu í löndum þar sem þýska er töluð sem móðurmál

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa margs konar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
  • kynna afmörkuð, undirbúin efni og taka þátt í samræðum um þau með því að beita framburði og málnotkun á sem réttastan hátt
  • skrifa styttri samfelldan texta, t.d. samantekt, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir
  • nota hjálpargögn, svo sem orðabækur, við úrvinnslu texta
  • velja sér lesefni á hæfilegu þyngdarstigi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur valið sér og tjá eigin skoðanir
  • fjalla um og halda uppi samræðum um efni sem hann hefur kynnt sér
  • vinna sjálfstætt og skipulega
  • tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunnar og hafa trú á eigin kunnáttu í faginu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is