FRAN2FD05 - Franska 4

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FRAN1FC05
Í þessum áfanga er áfram unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, málfræðigrunnur er styrktur og orðaforði aukinn jafnt og þétt. Unnið er með efni af ýmsu tagi, s.s. rauntexta á mismunandi þyngdarstigi, hlustunar- og myndefni. Áfanginn er í ríkari mæli en áður þematengdur og meiri áhersla lögð á menningu og þjóðfélagsmál í frönskumælandi löndum, einkum með tilliti til ungs fólks. Nemendur vinna svokallað blokkarverkefni, þ.e. þau búa til frönskumælandi íbúasamfélag í blokk og æfa sig í allskonar samskiptum í hlutverkum íbúanna. Þarna gefst gott tækifæri til upprifjunar og þjálfunar í talaðri og ritaðri frönsku daglegs lífs. Leitast er við að gera blokkarlífið sem líflegast og raunverulegast með því að fylgjast með því sem er að gerast í viðkomandi borg og í þjóðfélaginu almennt. Einnig er unnið með þætti/kvikmynd(ir) og bókmenntatexta, t.d. léttlestrarbók eða smásögur og verkefni unnin út frá því efni. Nemendur eru áfram þjálfaðir í sjálfstæðum vinnubrögðum og fá meiri tækifæri en í grunnáföngunum til að vinna verkefni út frá eigin áhugamálum. Áfanginn er símatsáfangi og ekki er lokapróf. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi A2 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • • ýmsum sérhæfðum þáttum í menningu og þjóðfélagsgerð Frakklands
  • • sérhæfðari þáttum franska málkerfisins (t.d. þátíð og einfaldri framtíð)
  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans, þ.m.t. flóknari orðasamböndum en áður
  • notkun frönskunnar til að mæta hæfniviðmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja nokkuð vel þegar rætt er um málefni daglegs lífs eða málefni sem hann þekkir vel
  • greina aðalatriði í frásögn, sjónvarps- eða útvarpsefni sem fjalla um afmörkuð málefni
  • skilja betur en áður orð og orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talmál
  • skilja einfalda eða einfaldaða bókmenntatexta og hafa betra vald á að túlka þá en áður
  • skilja stuttar greinar t.d. í tímaritum, dagblöðum og á netinu um ýmis efni með hjálp orðabóka og uppsláttarrita og skima nokkuð þunga texta sem tengjast þemum áfangans þannig að hann skilji aðalatriðin
  • taka þátt í samtali um afmörkuð, undirbúin efni og geta betur en áður beitt málfari við hæfi hverju sinni
  • skiptast á skoðunum við aðra um framtíðaráform, framtíðarsýn og önnur málefni sem tengjast námsefninu og geta betur en áður rökstutt mál sitt
  • halda stutta og hnitmiðaða kynningu á efni sem hann hefur undirbúið fyrirfram
  • skrifa texta af fjölbreyttara tagi en áður um efni sem tengist viðfangsefnum áfangans
  • gera útdrátt eða eigin hugleiðingar út frá frásögn í greinum, bókmenntatextum o.fl.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja aðalatriði í daglegu máli, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, ef hann þekkir til efnisins og talað er nokkuð skýrt
  • tileinka sér efni ritaðra texta af ýmsu tagi og hagnýta á mismunandi hátt
  • lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og eiga auðveldara en áður með að túlka hann og tjá sig munnlega og skriflega um efni hans
  • ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel til
  • taka þátt í einföldum skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
  • tjá sig á nokkuð skýran hátt um ýmis almenn efni eða sérhæfðari efni sem hann hefur kynnt sér vel
  • skrifa flóknari og fjölbreyttari texta en áður um ýmis efni
  • skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, t.d. stuttri blaðagrein
  • nýta markvissar en áður upplýsingatækni og ýmis hjálpargögn við textasmíð
Nánari upplýsingar á námskrá.is